Hlaupa yfir Valmöguleikar

Valmöguleikar


Umhverfisfræði UMH 103 er spennandi fjarnám, sem fjallar um samspil mannsins og athafnasemi hans við umhverfið sem við lifum í.

Viltu eignast skólafélaga á netinu? FAS býður framhaldsskólanemum um land allt að taka þátt í spennandi fjarnámi. Facebook verður hluti af námsumhverfinu. Lögð verður áhersla á samstarf nemenda, sem vinna saman og styðja hvern annan í námi.

FAS er til húsa í Nýheimum á Hornafirði. Þorpið Höfn er í senn sjávarútvegs- og landbúnaðarþorp, þar sem nærumhverfið er mótað af manninum en allt í kring eru áhrif náttúrunnar. Ströndin er mótuð af átökum hafsins við jökla og jökulár. Náttúran er ægifögur og hefur verið nýtt sem sviðsmynd fyrir alþjóðlegar kvikmyndir, svo sem Die Another Day, A View to a Kill, Batman Begins, Beowulf & Grendal og Tomb Raider.


Umhverfisfræði UMH 103

Í námskeiðinu Umhverfisfræði UMH 103 verður lögð áhersla á að nemendur afli sér þekkingar og öðlist skilning á samhengi milli áhrifa þeirra sjálfra á umhverfið, samanlagðra áhrifa aðgerða Íslendinga á umhverfið og hnattrænna áhrifa mannsins á umhverfið. Umhverfisfræði taka til auðlinda og nýtingu þeirra, sem og áhrifa af lífsmynstri okkar hvers og eins á umhverfið.

Námskeiðið er þverfaglegt þar sem umhverfisfræði fjalla um áhrif af athafnasemi mannsins á umhverfi sitt og samspil mannsins og umhverfisins. Umhverfisfræði höfða því til nemenda óháð því hvort þeir vilja leggja fyrir sig líffræði, listir, efnafræði, lögfræði, hagfræði, heimspeki, læknisfræði, félagsfræði, jarðfræði, fræði mennta og menningar, haffræði, uppeldisfærði, loftlagsfræði, landbúnaðarvísindi, fiskifræði, eða hverja aðra þá fræðigrein, sem með beinum eða óbeinum hætti hefur áhrif á umhverfi okkar. Maðurinn er afsprengi umhverfisins sem hann lifir í, en ræður orðið miklu um örlög þess.

Umhverfisfræði UMH 103 er fjarnámskúrs sem FAS býður upp á. Lögð er áhersla á að fá nemendur sem víðast að til að taka þátt í náminu. Lögð verður áhersla á að skapa sterk tengsl milli nemenda innbyrðis annarsvegar og hinsvegar milli kennara og nemenda. Facebook mun hafa mikilvægu hlutverki að gegna í náminu til að styrkja og efla samskipti milli nemenda og kennara. Námið verður byggt upp af verkefnum sem nemendur vinna saman. Eftir því sem líður á námskeiðið ráða nemendur meira um val og mótun verkefna. Umhvefisfræði UMH 103 er spennandi fjarnám, sem fjallar um samspil mannsins og umhverfisins og athafnasemi mannsins í því umhverfi sem hann lifir í.

Áfangalýsing fyrir Umhverfisfræði UMH103


Íslenski Haförninn
Viðkoma íslenska hafarnarins er lýsandi dæmi um að áhrif mannsins á umhverfi sitt eru í senn staðbundin og hnattræn. Íslenski haförninn verður bæði fyrir áhrifum af staðbundnum aðgerðum Íslendinga á umhverfið sem hann lifir í og af hnattrænni mengun sem berst til landsins með loft- og hafstraumum. Eitrun fyrir tófu hafði nær útrýmt íslenska haferninum. Nýlegar rannsóknir á fúleggjum hafarnarins sýna að efnamengun hamlar viðkomu hans hér á landi. Samspil verka mannsins og viðkomu arnarins eru meðal viðfangsefna umhverfisfræða.

Hlaupa yfir Dagatal

Hefurðu áhuga á umhverfisfræðum?

Viltu vita hvort UMH 103 hentar þér?
Hafðu samband við Gráskinnu!

Graskinna

 


Ekki innskráður. (Innskrá)